Velkomin á heimasíðu tannlæknastofunnar Heilartennur.is Tannlæknar stofunnar veita allar almennar tannlækningar fyrir fullorðna og börn, allt frá forvörnum til tannplantaaðgerða. Setjum einnig hvítar fyllingar, postulínskrónur og brýr ef laga þarf skemmdar eða tapaðar tennur. Tannplantar eru einnig frábær lausn þar sem tennur hafa tapast. Sjáum um tannhreinsanir og eftirlit tanna og tannholds en líka er hægt að lýsa dökkar tennur með tannhvíttun. Stofan er mjög vel tækjum búin og unnið er í rólegu umhverfi með nýjustu efnum og aðferðum.
Allar ljósmyndir af tönnum eða umhverfi sem birtast á heimasíðunni eru teknar á tannlæknastofunni.